Próteinpönnukökur fyrir einn

Telma Matthíasdóttir hjá Bætiefnabúllunni er dugleg ð útbúa góðar máltíðir …
Telma Matthíasdóttir hjá Bætiefnabúllunni er dugleg ð útbúa góðar máltíðir sem eru stútfullar af próteini og þar á meðal þessar pönnukökur. Samsett mynd

Það er lítið mál að gera prótein­pönnu­kök­ur fyr­ir einn. Telma Matth­ías­dótt­ir hjá Bæti­efna­búll­unni er dug­leg ð út­búa góðar máltíðir sem eru stút­full­ar af próteini og þar á meðal þess­ar pönnu­kök­ur. Hún hef­ur mikið dá­læti af þess­um og ger­ir þær oft fyr­ir sig eina.

Hún deildi þess­ari ein­földu upp­skrift með fylgj­end­um sín­um á In­sta­gram á dög­un­um og sýndi hversu auðvelt er að gera góðar pönnu­kök­ur sem eru stút­full­ar af orku.

Próteinpönnukökur fyrir einn

Vista Prenta

Prótein­pönnu­kök­ur

Fyr­ir 1 (4-5 stk.)

  • 50 g pönnu­köku­prótein­duft, fæst til dæm­is í Hag­kaup
  • 150 ml vatn

Ofan á

  • fersk jarðarber, eft­ir smekk
  • rjómi eft­ir smekk
  • salty cara­mellu sósa ef vill

Aðferð:

  1. Setjið hrá­efnið sam­an í skál eða krukku og blandið vel sam­an, t.d. með handþeyt­ara.
  2. Látið standa í 5 mín­út­ur.
  3. Hitið síðan pönn­una á rúm­lega meðal­hita.
  4. Steikið síðan eina pönnu­köku í einu á miðjunni á pönn­unni, þannig verða þær fal­leg­ast­ar.
  5. Dug­ar að steikja eina til tvær mín­út­ur á hvorri hlið.
  6. Staðið síðan í stafla á disk.
  7. Toppið með salty cara­mel sósu, rjóma og jarðarberj­um eft­ir smekk.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert
Loka