Klukkan er að slá sex á aðfangadag og enn eitt árið brenna brúnuðu kartöflurnar við á pönnunni – glatað! Farðu eftir þessum ráðum og þú munt leika þér að þessu hér eftir.
Svona brúnar þú kartöflur án þess að brenna þær
- 700-800 g soðnar litlar kartöflur
- 5-6 msk. sykur
- 2 msk. smjör
- Sítrónutimían
Aðferð:
- Settu soðnu kartöflurnar í sigti og heltu smá köldu vatni yfir. Leyfðu kartöflunum að vera rakar en ekki blautar þegar þær fara á pönnuna. Þannig helst sykurinn betur á kartöflunum þegar hann karamelluserast á pönnunni.
- Bræddu sykurinn á pönnu á jöfnum hita þar til gylltur að lit. Bættu þá smjörinu út á og hrærðu í með trésleif þar til myndast flottur massi.
- Bættu kartöflunum út á pönnuna og veltu þeim varlega upp úr karamellunni í 10-15 mínútur.
- Settu kartöflurnar í skál og stráðu sítrónutimían yfir.