Hér erum við með dásamlegt Dukkah úr smiðju Sollu Eiríks sem bragðast hreint ótrúlega vel.
Uppskriftin birtist í Hátíðarmatarblaði mbl og Hagkaups sem Solla átti að mestu leiti heiðurinn að. Hægt er að nálgast blaðið
HÉR.
Dásamlegt Dukkah eins og Solla gerir það
- 3 dl ristaðar möndlur/blandaðar hnetur
- 2 ½ dl ristuð sesamfræ
- 2 msk. kóríanderfræ, þurrristuð á pönnu/ofni
- 2 msk. cuminfræ, þurrristuð á pönnu/ofni
- ½ msk. fennelfræ, þurrristuð á pönnu/ofni
- 1 tsk. svört piparkorn, þurrristuð á pönnu/ofni
- 1 tsk. sjávarsaltflögur
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C. Setjið allt nema saltið á ofnplötu og þurrristið í 6 mínútur.
- Látið kólna í 5-10 mín.
- Allt sett í matvinnsluvél og grófmalað.