Hér erum við með algjörlega frábært kartöflusalat frá Sollu Eiríks sem bragðast hreint ótrúlega vel.
Uppskriftin birtist í Hátíðarmatarblaði mbl og Hagkaups sem Solla átti að mestu leiti heiðurinn að. Hægt er að nálgast blaðið HÉR.
Kartöflusalatið hennar Sollu
- 1 kg soðnar kartöflur, skornar í sneiðar
- ½ rauðlaukur, smátt saxaður
Aðferð:
- Kartöflurnar eru soðnar og skornar í þunnar sneiðar og settar í skál.
- Rauðlaukurinn er afhýddur og smátt saxaður.
- Dressingin er hrærð saman og hellt yfir kartöflurnar.
- Þetta salat geymist í 5-7 daga í kæli og veður bara betra með hverjum deginum.
Dressing
- 300 g vegan majónes
- 200 g sýrður vegan rjómi
- 2 msk. sætt sinnep
- 1 msk. rifin piparrót
- 1 tsk. malaður svartur pipar
- 1-2 tsk. hrásykur
- 1 tsk. eplaedik
- 1 tsk. sjávarsaltflögur
Aðferð:
- Hrærið öllu saman í skál og hellið yfir kartöflurnar.