Hagkaups hamborgarhryggurinn hefur verið vinsælasti hryggurinn þeirra undanfarin 16 ár og er vel að því kominn.
Uppskriftin birtist í Hátíðarmatarblaði mbl og Hagkaup. Blaðið er hægt að nálgast HÉR.
Uppáhaldsjólamáltíð þjóðarinnar
- 1 stk. Hagkaups hamborgarhryggur
Aðferð:
- Þennan hamborgarhrygg þarf ekki að sjóða, en hann er settur í eldfast mót eða ofnskúffu ásamt 6 dl af köldu vatni.
- Settur í ofn á 160°C í 90 mínútur, þá tekinn út, penslaður með gljáanum og settur aftur inn í ofn í 15 mínútur, en þá á 220°C.
Gljái á hrygginn
- 100 g púðursykur
- 2 msk. hunangs Dijon-sinnep
- 4 msk. rjómi
- börkur af einni appelsínu
- 2 msk. appelsínusafi
Aðferð:
- Blandað saman og penslað yfir hrygginn.
- Geymið eins og tvær matskeiðar fyrir sósuna.
Jólasósan
- 1 lítri svínasoð
- 2 msk. gljái
- ½ lítil dós jólaöl
- 2½ dl rjómi
- rifsgel
- maizena
- salt
- sósulitur
- svínakraftur
Aðferð:
- Soðið af hryggnum er sigtað í pott, ef það nær ekki 1 lítra þá er vatni og svínakrafti bætt út í.
- Síðan er gljáanum og jólaölinu bætt saman við og soðið niður um um það bil helming. Næst er rjómanum bætt út í og sósan smökkuð til, hún gæti þurft smá salt eða rifsgel.
- Að lokum er sósan þykkt með maizena og lituð með sósulit.
Karamellukartöflur sem aldrei klikka
- 500 g kartöflur
- 200 g rjómatöggur frá Nóa
- 1,5 dl mjólk
- 50 g smjör
Aðferð:
- Kartöflur annaðhvort soðnar eða skolaðar ef notaðar eru forsoðnar kartöflur.
- Í potti á vægum hita eru karamellurnar og mjólkin brædd saman, þegar blandan er orðin kekkjalaus er smjörinu bætt út í og hrært þar til blandast saman.
- Að lokum er kartöflunum bætt út í og leyft að draga aðeins í sig karamellusósuna áður en þær eru bornar fram.
Karamelliseruð kartöflumús
- 200 g púðursykur
- 200 g rjómi
- 20 g smjör (1)
- 750 g kartöflur
- 70 g smjör (2)
- salt
Aðferð:
- Kartöflurnar bakaðar í ofni þar til þær eru orðnar vel mjúkar í gegn.
- Á meðan þær eru í ofninum er karamellan búin til með því að sjóða saman rjómann og púðursykurinn, þegar suðan er komin upp skal lækkað undir og karamellan látin krauma rólega í 5-10 mínútur.
- Í lokin er hún tekin af hitanum og smjörinu (1) hrært út í.
- Þegar kartöflurnar eru bakaðar í gegn er skafið innan úr hýðinu í stóra skál, mér finnst best að nota hrærivél hér, og karamellunni hellt út í ásamt smjörinu (2).
- Hrært varlega þar til allt blandast vel saman, en passa skal þó að hræra ekki of mikið því þá getur áferðin á kartöflunum breyst.
- Músin er að lokum smökkuð til með salti.