Brokkolísalat sem bræðir bragðlaukana
- 1 haus brokkolí, skorinn í passlega munnbita
- ½ haus fjólublátt blómkál, skorið í passlega munnbita
- 2 msk. hitaþolin olía
- 1 tsk. sjávarsalt
- 50 g radísur, skornar í báta
- 100 g kasjúhnetur
- 2 msk. bbq-sósa
- 1-2 tsk. rifinn appelsínubörkur
- skvetta af ólífuolíu
Aðferð:
- Hitið ofninn í 160°C og setjið bökunarpappír á ofnplötu. Setjið kasjúhneturnar í skál og bbq-sósuna yfir og blandið þar til kajsúhneturnar eru orðnar vel húðaðar af sósunni.
- Dreifið á ofnplötuna og bakið í um 15 mínútur. Hrærið á ca. 3 mínútna fresti til að hneturnar bakist og dragi í sig bbq-bragðið.
- Hitið olíu á pönnu. Þegar hún er orðin heit, steikið fyrst brokkolíið og síðan blómkálið og kryddið með sjávarsalti.
- *Setjið í skál, bætið radísum út í og stráið örlátlega af kasjúhnetunum yfir.
- *Gott að rífa smá börk yfir ásamt smá skvettu af ólífuolíu.