Fashani er herramannsmatur og ótrúlega skemmtilegur á bragðið. Hér er hann framreiddur með beikonblæju og kom sú úfærsla ótrúlega vel út og við mælum með að þið prófið enda er fashani fyrirtaksmatur.
Uppskriftina er að finna í Hátíðarmatarblaði mbl og Hagkaup sem hægt er að nálgast HÉR.
Fasani með trufflurísottó og smjörsteiktum sveppum
Fasani
- 2 stk. fasani
- 1 dl olía
- 75 g smjör
- 8-10 sneiðar beikon
- Timían
- Salt
- Pipar
Kryddjurta-mayo
- 200 g Hellmann's mayo
- 2 stk. hvítlauksgeirar
- 3 greinar timían – pillað af greinunum
- 1 grein rósmarín – pillað af greininni
- Salt
Aðferð:
- Fasaninn þerraður, saltaður og pipraður. Þá er olían og smjörið hitað í djúpri pönnu þar til byrjar að freyða aðeins, þá er fasaninn steiktur í olíunni/smjörinu á öllum hliðum.
- Þegar hann er orðinn gullinbrúnn er hann settur í eldfast mót ásamt öllu smjörinu.
- Bringurnar þerraðar örlítið og majónesinu smurt yfir og beikonið breitt yfir fuglinn.
- Nokkrar timíangreinar eru settar inn í fuglinn og hann settur inn í heitan ofn á 180°C í um það bil 45 mínútur.
- Tvisvar á þeim tíma er gott að taka fasanann út og ausa yfir hann smjörinu úr fatinu.
- Hann þarf þá að hvíla í allavega 10 mínútur áður en hann er skorinn og borðaður.
Trufflurísottó
- 2 pakkar truffle risotto il Boschetti
Aðferð:
- Tilbúnir trufflurísottó-pakkar, leiðbeiningum á pakkningum fylgt. Mæli með að nota smá hvítvín út í grjónin til að byrja með.
Smjörsteiktir sveppir
- 400 g sveppir – allskonar
- 40 g smjör
- 1 stk. hvítlauksrif – rifin
- 2 timíangreinar
- Olía
- Salt og pipar
Aðferð:
- Sveppirnir skornir í frekar stóra bita. Panna hituð með smá af olíu og smjörinu.
- Sveppirnir settir út á pönnuna þegar smjörið er farið að freyða aðeins.
- Steiktir í um það bil mínútu, þá er hvítlauknum og timíangreininni bætt út á og hrært vel í, steikt þar til sveppirnir eru orðnir mjúkir og farnir að brúnast.
- Smakkað til með salti og pipar.