Þessi máltíð er klárlega á topp tíu enda bæði æðislega bragðgóð og mjög einföld. Kalkúnninn er léttur í maga og við mælum með að þið gerið vel af meðlætinu og hafið góða sósu með því það er svo gott að gæða sér á afgöngum næstu daga.
Kalkúnaskip með æðislegu meðlæti
- 1 kalkúnaskip frá Hagkaup
- 1 rauðlaukur
- 3 sellerístilkar
- 1 hvítlaukur
- 1 appelsína
- timían
- rósmarín
- salt
- pipar
- góð ólífuolía
- rósakál
- beikon
- sveppir
Aðferð:
- Setjið olíu í botninn á eldföstu móti.
- Skerið niður rauðlauk, sellerí, hvítlauk og appelsínur og setjið í botninn á mótinu ásamt nokkrum greinum af timían.
- Leggið kalkúnaskipið ofan á.
- Kryddið vel með Bezt á kalkúninn-kryddi.
- Hellið góðri ólífuolíu yfir.
- Setjið inn í ofn samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
- Skerið niður beikon.
- Snyrtið rósakálið og skerið niður ef þarf.
- Setjið olíu í pott, steikið beikonið og setjið rósakálið saman við.
- Saltið og kryddið.
- Skerið sveppina í fernt og setið út í pottinn.
- Skerið sætu kartöflurnar niður og setjið í eldfast mót ásamt nokkrum greinum af timían og rósmaríni. Hellið vel yfir af góðri olíu og saltið og piprið rausnarlega.