Hér er á ferðinni æðisleg ísterta sem á hittir heldur betur í mark. Við erum að tala um piparköku jólaís með rjómaosti og öðru fíneríi. Algjörlega skotheld uppskrift sem vert er að bjóða upp á.
Piparköku jólaís með rjómaosti, pekanhnetum og karamellu
Botn:
- 280 g piparkökur
- 80 g smjör
Jólaís:
- 5 eggjarauður
- 70 g sykur
- 170 g púðursykur
- 350 g rjómaostur, þessi nýi og mjúki
- 3 tsk. vanilludropar
- 500 ml rjómi
- 200 g dökkt súkkulaði
- 100 g pekanhnetur
- 100 g karamellusósa
Toppur
- 500 ml rjómi
- Piparkökur
- Pekanhnetur
- Karamellusósa
Aðferð
- Hakkið piparkökur gróflega í matvinnsluvél, bræðið smjör og hrærið saman við piparkökurnar þar til allt hefur blandast vel saman.
- Setjið smjörpappír í hringlaga smelluform, ca 20-24 cm að stærð og þrýstið piparkökunum í botninn og upp á hliðar formsins. Gott er að nota botninn af glasi til þess að þrýsta þeim vel niður og upp á kantana. Setjið formið í frysti á meðan þið undirbúið ísinn.
- Þeytið eggjarauður og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt.
- Setjið púðursykur saman við og hrærið með sleif þar til hann hefur blandast vel saman við.
- Hrærið rjómaostinn þar til hann verður mjúkur og sléttur, bætið við vanilludropum og blandið rjómaostinum saman við með sleif.
- Þeytið rjóma þar til hann er alveg að verða stífur og blandið honum saman við með sleif. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Saxið niður súkkulaði og pekanhnetur og blandið saman við.
- Hellið ísblöndunni yfir piparkökubotninn.
- Hellið Karamellunni saman við ísinn. Takið hníf og snúið honum í hringi þar til karamellan hefur náð að blandast saman við ísinn. Passið ykkur þó á því að setja hnífinn ekki í botninn á ísnum.
- Frystið í að lágmarki 5 klst.
Toppur
- Þeytið rjóma, setjið hann í rjómasprautupoka með þeim stút sem þið kjósið, en hér er notaður hringlaga stútur. Einnig er hægt að klippa gat á endann á pokanum og sprauta þannig ofan á ísinn.
- Skreytið ísinn að vild með rjómanum.
- Saxið niður pekanhnetur og dreifið yfir rjómann.
- Skreytið t.d. piparkökur og setjið ofan á rjómann ásamt karamellusósu.
- Karamellusósan má vera íssósa keypt út úr búð, önnur karamellusósa eða heimagerð.