Menn hafa misjafnar aðferðir við að brúna kartöflurnar og er lykilatriðið þar algjörlega að nota nóg af smjöri og sykri. Sumir nota jafnvel kók en hér er á ferðinni uppskrift sem ætti að æra óstöðugan. Hér eru rjómatöggur frá Nóa Síríus í aðalhlutverki en karmellubragðið tekur kartöflurnar upp á næsta stig!
Karamellukartöflur sem aldrei klikka
- 500 g kartöflur
- 200 g rjómatöggur frá Nóa
- 1,5 dl mjólk
- 50 g smjör
Aðferð:
- Kartöflur annað hvort soðnar eða skolaðar ef notaðar er forsoðnar kartöflur.
- Í potti á vægum hita eru karamellurnar og mjólkin bræddar saman. Þegar blandan er orðin kekkjalaus er smjörinu bætt út í og hrært þar til allt er orðið samlagað.
- Að lokum er kartöflunum bætt út í og leyft að draga aðeins í sig karamellusósuna áður en þær eru bornar fram.
mbl.is/Kristinn Magnússon