Hér er á ferðinni uppskrift sem sigraði eftirréttakeppni Rásar 2 fyrir nokkrum áratugum. Höfundur hennar var Sverrir Páll Erlendsson en við erum að tala um forláta After Eight búðing sem hefur verið fastur liður í jólahaldi ansi margra fjölskyldna hér á landi allt frá því hann sigraði keppnina góður.
Myntudraumur
- 1 dós (400 g) rjómaostur
- 2 egg
- 8-10 msk. flórsykur
- 1-2 tsk. vanilludropar
- 200 g Carletti súkkulaði
- ½ l rjómi
- 10-12 plötur After Eight
- Skraut: After Eight, rjómi og/eða vanilluís
Aðferð:
- Rjómaosturinn hrærður vel svo hann verði kekkjalaus.
- Eggin rækilega þeytt ásamt flórsykri og vanilludropum, blandað saman við ostinn.
- Súkkulaðið brætt og hellt smátt og smátt út í á meðan hrært er. Kælt um stund í ísskáp eða frysti.
- 10-12 plötur After Eight kældar í frysti og síðan brytjaðar nokkuð smátt og settar saman við.
- Rjóminn stífþeyttur og blandað varlega með skeið/sleif saman við allt hitt.
- Sett í skál og kælt vel.
- Borið fram í eftirréttaskálum. Til skrauts má stinga einni plötu af After Eight á hornið ofan í. Svolítil sletta af þeyttum rjóma og/eða smákúlur af vanilluís til skrauts og bragðbætis ef vill.