Til er sá forréttur sem kemur bragðlaukunum á óvart, og það er þessi hér.
Hangikjöt með mandarínum, möndlum og gráðosti - namm! Uppskriftin tekur stutta stund að úbúa og mettar 4-6 maga.
Jólaforréttur sem kemur bragðlaukunum á óvart
- Reykt hangilæri á beini, vel reykt og hangið.
- Ristaðar möndlur
- Mandarínur, skrældar og skornar smátt
- Gráðostur
- Graslaukur, saxaður
- Fljótandi hunang
Aðferð:
- Sneiðið af hráu lærinu eins þunnar sneiðar og þið getið og raðið á diska.
- Setjið möndlur, mandarínur og graslauk yfir. Setjið nokkrar klípur af gráðosti á hvern disk og síðast ögn af hunangi.