Að brúna kartöflur getur verið kvíðavaldandi fyrir suma - þá hvort karamellan klúðrist eða verði vellukkað listaverk. En með þessari aðferð hafa leikar snúist, og þú munt ekki vilja útfæra kartöflurnar á neinn annan máta eftir þetta.
Brúnaðar kartöflur
- 900 g kartöflur
- 150 g púðursykur
- 25 g smjör
Aðferð:
- Setjið kartöflurnar í eldfast mót. Gott er að setja bökunarpappír í mótið ef þú vilt auðvelda þrifin. Dreyfið sykri og smjörbitum yfir kartöflurnar og setjið inn í ofn.
- Veltið kartöflunum upp úr blöndunni á 15 mínútna fresti. Þær eru tilbúnar þegar þær eru ljúffengar og karamellan orðin þykk og loðir vel við kartöflurnar. Hér þarf að hafa þolinmæði, því það tekur um 45-60 mínútur að baka kartöflurnar.