Aspas er vinsælt meðlæti, hvort sem er á jólum eða með hversdagsmat. Hér er uppskrift að einkar gómsætum aspas með hollandaise og rifinni reyktri bleikju. Matreiðslumaðurinn Snædís Jónsdóttir matreiðir aspasinn á þennan einstaka og ljúffenga hátt.
Aspas og rifin reykt bleikja
- 2 búnt aspas
- Salt
- 100 g frosin reykt bleikja
Aðferð:
- Gott er að vera búinn að frysta bleikjuna daginn áður / geyma í frysti.
- Sjóðið aspas í saltvatni í 2-3 mínútur, fer eftir stærð.
- Sprautið hollandaise yfir aspasinn og rífið bleikjuna yfir.
- Það er líka hægt að grilla aspasinn, fyrir þá sem það vilja.
Hollandaise í rjómasprautu
- 1 msk bernaise-essens / sítrónusafi / gott edik
- 3 stk. eggjarauða
- 300 g smjör
- Salt
Aðferð:
- Bræðið smjör í potti.
- Hitið eggjarauður í vatnsbaði upp í um það bil 80°C og setjið bernaise-essens út í.
- Hellið hægt og rólega smjöri út í á meðan það er hrært stöðugt í eggjunum.
- Smakkið til með salti.
Þessa uppskrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hagkaup.
Aspas með hollandaise í rjómasprautu og rifin reykt bleikja.
mbl.is/Eyþór