Minningabókin er falleg bók sem inniheldur allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Athugið að bókin er ekki innbundin og því auðvelt að bæta við hana efni sem tengist viðkomandi.
Minningabókin inniheldur allar minningargreinar um viðkomandi, hvort sem þær birtust í Morgunblaðinu eða á mbl.is. ATH: Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 til dagsins í dag.
Framsetning efnis í minningabókunum er með sama hætti og það birtist í Morgunblaðinu. Fyrsta æviágripið sem birtist er notað. Ekki er byrjað að vinna minningabækur fyrr en mánuði eftir útför til að tryggja að allar minningargreinar hafi borist.
Hver bók kostar 17.500 kr. Innifalið í verðinu er virðisauki. Ef senda á bók úr landi gildir verðskrá Íslandspósts. Ef keyptar eru þrjár bækur eða fleiri, er afsláttur á hverri bók 1.000 kr. Áskrifendur Morgunblaðsins fá 10% afslátt.
Þú hefur valið að kaupa minningabók um Halldór Sæmundsson:
Halldór fæddist 13. apríl 1960 í Aðalstræti 23 á Patreksfirði. Hann lést á heimili sínu, Fögruhlíð, Skálatúni, 15. desember 2013. Hann var þriðja barn hjónanna Aðalheiðar H. Kolbeins og Sæmundar J. Kristjánssonar. Systkini hans eru Lilja, Barði, Ólafur, Helgi og Ásdís. Fimm ára gamall fór Halldór á