Í fyrsta þætti af Dætrum Íslands heimsækjum við knattspyrnu- og landsliðskonuna Sveindísi Jane Jónsdóttur, leikmann Wolfsburg í Þýskalandi.
Sveindís, sem er tvítug, hefur leikið með Wolfsburg frá því í janúar 2022 en liðið varð bæði bikar- og Þýskalandsmeistari á nýliðnu keppnistímabili.
Hún hélt út í atvinnumennsku í desember 2020, þá 19 ára gömul, þegar Wolfsburg keypti hana af uppeldisfélagi hennar Keflavík. Tímabilið 2021 lék hún á láni hjá Kristianstad í Svíþjóð.
Sveindís stimplaði sig rækilega inn hjá þýska liðinu á tímabilinu, þar sem hún skoraði 3 mörk og lagði upp önnur fjögur, þar af tvö í Meistaradeildinni gegn Arsenal, í 14 leikjum með Wolfsburg í öllum keppnum á tímabilinu.
Alls á hún að baki 18 A-landsleiki þar sem hún hefur skorað sex mörk en hún lék sinn fyrsta landsleik í september 2020 gegn Lettlandi á Laugardalsvelli í undankeppni EM.
Hægt er að horfa á þáttinn um Sveindísi Jane í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.