Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, reyndist hetja Blackburn Rovers þegar hann kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið í 2:1-sigri á Oxford United í ensku B-deildinni í dag.
Staðan var 1:1 í hálfleik og kom Arnór inn á sem varamaður á 76. mínútu.
Sjö mínútum síðar skoraði Skagamaðurinn sigurmarkið og sá til þess að Blackburn fór upp í þriðja sætið þar sem liðið er með sjö stig eftir þrjá leiki.