Walsverjinn Owen Beck er genginn til liðs við Blackburn á láni frá Liverpool.
Beck verður þar samherji Arnórs Sigurðssonar, landsliðsmanns í knattspyrnu, sem skoraði sigurmarkið í 2:1-sigri Blackburn á Ocford í ensku B-deildinni síðustu helgi.
Beck, sem er 22 ára gamall, var á láni hjá skoska liðinu Dundee United á síðustu leiktíð en fyrir það hefur hann farið á láni til Bolton.