Aðalsími Morgunblaðsins er 569-1100. Þeir sem vilja koma myndum, fréttaefni eða öðrum upplýsingum á framfæri við starfsmenn Morgunblaðsins á Netinu, mbl.is, fyrir klukkan átta á morgnana og eftir klukkan ellefu á kvöldin, geta sent póst á netfangið netfrett@mbl.is. Um helgar er síminn 669-1200.
Sérstakt netfang Íþróttavefjar er sport@mbl.is. Netfang Formúluvefjar er formula@mbl.is
Fyrirspurnir og ábendingar sem ekki tengjast fréttaflutningi sendist vefstjorn@mbl.is.Upplýsingar um birtingu auglýsinga á mbl.is má nálgast með því að smella hér. Þar er að finna upplýsingar um staðla, birtingar og verð.
Smáauglýsingavef er að finna á slóðinni mbl.is/smaaugl/. Netfang smáauglýsingavefs er smaaugl@mbl.is.
Upplýsingar um hvernig senda eigi efni til birtingar í Morgunblaðinu, minningagreinar, fréttir, bréf til blaðsins og aðsendar greinar, má nálgast með því að smella hér.
Upplýsingar um birtingar auglýsinga í Morgunblaðinu, staðsetningar og verð má má nálgast með því að smella hér.
Netföng Morgunblaðsins og starfsmanna þess má finna með því að smella hér.
Föst fréttavakt er á mbl.is frá því klukkan 6 á morgnana til klukkan 11 á kvöldin á virkum dögum og frá því klukkan 9 á morgnana til klukkan sjö á kvöldin um helgar. Einnig eru fréttir skrifaðar á öðrum tímum eftir því sem tilefni gefst til.
Fréttavefur mbl.is var formlega opnaður 2. febrúar árið 1998, en í árslok 1994 hóf Morgunblaðið, fyrst íslenskra fjölmiðla, að birta efni úr blaðinu á Netinu.
Sérstakri netdeild var komið á fót innan Morgunblaðsins vorið 1997. Framkvæmdastjóri Netdeildar Morgunblaðsins er Gylfi Þór Þorsteinsson. Sumarið 1997 var starfræktur íþróttavefur í tengslum við Íslandsmótið í knattspyrnu. Í upphafi árs 1998 var ákveðið að stofna sérstaka netfréttadeild sem skrifa myndi fréttir sérstaklega fyrir netútgáfuna og í kjölfar þess ráðinn fréttastjóri netfrétta. Fréttastjóri Fréttavefjar Morgunblaðsins er Guðmundur Sv. Hermannsson. Þá voru tveir blaðamenn ráðnir til starfa á deildinni. Með auknum umsvifum hefur blaðamönnum fjölgað og eru þeir nú sex auk fréttastjóra.
Efni það sem finna má á Fréttavefnum er að mestu unnið af starfsmönnum netfréttadeildar, en einnig birtast þar valdar fréttir og greinar úr Morgunblaðinu. Þá er ýmsa sérvefi að finna á mbl.is sem eru oft settir upp í tengslum við íþrótta- og heimsviðburði. Einnig hefur Morgunblaðið á Netinu boðið upp á ýmsa netleiki og myndasýningar.
Myndirnar sem birtast á vefnum eru eign Morgunblaðsins, en ljósmyndararnir sem þær tóku, eiga höfundarréttinn. Morgunblaðið sér um sölu myndanna samkvæmt samningi við ljósmyndarana.
Heimilt er að nota þessar myndir á Vefnum en þó með ákveðnum skilyrðum: