Vodafone hefur stefnt Fjarskiptasjóði og Símanum vegna samnings um háhraðanettengingar í dreifðum byggðum. Vodafone telur að samningurinn feli í sér ólögmæta ríkisaðstoð við Símann, enda hafi hann ekki verið tilkynntur til Eftirlitsstofnunar EFTA sem þarf að samþykkja ríkisaðstoð.
Mál Vodafone á hendur Fjarskiptasjóði og Símanum var nýlega þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Vodafone telur að efnislega feli samningurinn í sér verulegar ívilnanir af almannafé fyrir einn aðila á fjarskiptamarkaði og raski verulega samkeppni. Vodafone krefst þess að samningurinn verði dæmdur ólögmætur og bótaskylda hins opinbera verði viðurkennd, að því er segir í fréttatilkynningu. Þar segir ennfremur:
„Forsaga málsins er sú, að á árinu 2008 óskaði Fjarskiptasjóður f.h. ríkisins eftir tilboðum frá aðilum sem vildu taka að sér að veita háhraðanetþjónustu á svæðum þar sem ekki voru markaðslegar forsendur fyrir slíkri þjónustu. Alls bárust sjö tilboð í verkið frá fjórum aðilum. Lægsta tilboðið var frá Símanum og hljóðaði upp á 378 milljónir. Hæsta tilboðið var líka frá Símanum og hljóðaði upp á 5 milljarða króna. Í innsendum tilboðum buðu fjarskiptafyrirtækin ólíkar tæknilegar lausnir og ólíkan verktíma, og skýrist hinn mikli verðmunur á tilboðunum af því. Í kjölfar útboðsins var gengið til viðræðna við Símann á grundvelli lægsta tilboðsins.
Í febrúar 2009 var samningur við Símann undirritaður og um leið upplýst að samningsupphæðin væri nú 606 milljónir. Samningurinn var verulega frábrugðinn útboðslýsingunni. Verktíminn hafði verið lengdur, tilslakanir gerðar á tæknilegum kröfum, samningurinn var nú gengistryggður og þeim stöðum sem verkefnið átti að ná til hafði verið fjölgað. Væntanlega í þeim tilgangi að auka greiðslur til Símans.
Þá tryggir samningurinn Símanum einkarétt á að veita þjónustu gegnum þann búnað sem settur er upp. Það telur Vodafone afar óeðlilegt, enda ættu öll fjarskiptafyrirtæki að hafa jafnan aðgang [til að] selja þjónustu í gegnum búnað sem kostaður er af almannafé.
Raunar áttu önnur fjarskiptafélög upphaflega að fá svokallaðán reikiaðgang að umræddum sendum, samkvæmt upphaflegum útboðsgögnum. Í endanlegum samningi er öðrum fjarskiptafyrirtækjum hins vegar eingöngu heimilt að endurselja þjónustu Símans, sem einnig er augljós hindrun á samkeppni.
Eftir undirritun samningsins milli Fjarskiptasjóðs og Símans óskaði Vodafone eftir afriti af samningnum. Þeirri ósk var hafnað. Eftir að hafa kært höfnunina til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál fékk Vodafone aðgang að hluta þeirra gagna sem um ræðir, en ekki öllum. Þetta telur Vodafone með öllu ólíðandi, enda beri að birta alla samninga opinberra aðila sem gerðir eru í kjölfar útboðs. Vinnulagið bendir til þess að umræddir samningar hins opinbera við Símann þoli illa dagsljósið.“