Tveir gervihnettir, fjarskiptahnöttur í eigu bandaríska fjarskiptafélagsins Iridium og rússneskur gervihnöttur sem ekki var í notkun, rákust saman á miklum hraða í 780 km hæð yfir Síberíu. Er þetta í fyrsta skipti, sem gervihnettir rekast saman úti í geimnum.
Við áreksturinn tættust hnettirnir í sundur. Að sögn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA er ekki talið að alþjóðlegu geimstöðinni stafi hætta af braki úr hnöttunum en stöðin er á sporbaug 435 km neðan við svæðið. Þá er ekki heldur talið að áreksturinn hafi áhrif á fyrirhugaða geimferð geimferju síðar í febrúar.
Rússneski hnötturinn vó 950 kg en honum var skotið á loft árið 1993. Iridium gervihnötturinn vó 560 kg en hann hefur verið í geimnum frá 1997.
Vonast er til að brakið úr hnöttunum brenni upp í lofthjúpi jarðar. Fylgst er með mörg hundruð bútum úr gervihnöttunum.
Um 6000 gervihnettir hafa verið sendir á sporbraut úti í geimnum frá árinu 1957.