Samninganefndir Íslands, og Breta og Hollendinga, hafa komið sér saman
um grundvallaratriðin í nýju samkomulagi vegna Icesave reikninga
Landsbankans. Drögin hafa verið kynnt hagsmunaaðilum. Samkvæmt þeim munu
40 til 60 milljarðar falla á íslenska ríkið. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Viðræður um Icesave hófust á ný eftir nokkurra mánaða hlé í júlí á þessu ári og voru þá haldnir nokkrir formlegir fundir.
Samkvæmt
heimildum fréttastofu Stöðvar 2 hafa samninganefndirnar nú komið sér saman um
grundvallaratriði í nýju samkomulagi. Það mun byggja á töluvert lægri
vöxtum en áður var rætt um, eða um 3% vöxtum.