„Tilfinningin er einstök,“ sagði Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði Íslandsmeistaraliðs FH, skömmu áður en hann tók við bikarnum. „Við sýndum gríðarlegan styrk og komum til baka eftir flestir töldu mótið tapað hjá okkur. Við tókum okkur sannarlega saman í andlitinu á lokasprettinum.
Þar sem Fram lagði Keflavík að velli höfnuðu FH-ingar á toppi deildarinnar með 47 stig, einu meira en Keflvíkingar. Spurður um hvort að hann hafi búist við þessum úrslitum í Keflavík, segist Davíð hafa haft mikla trú á Fram. „Og ég mun hringja í Audda [Auðunn Helgason] og þakka honum fyrir.“