Fjármálaeftirlitið segir, að í frétt Morgunblaðsins í dag sé fullyrt að stofnunin hafi vísað rannsókn á fjárfestingum ákveðinna peningamarkaðssjóða til sérstaks saksóknara og vitnar blaðið til ónafngreindra heimilda í því sambandi. Í fréttinni sé enn fremur haft eftir Fjármálaeftirlitinu að rannsóknir þess á peningamarkaðssjóðum standi enn yfir og að vonandi sé niðurstaðna að vænta á næstu vikum.
„Fjármálaeftirlitið vill taka fram að svar þess var gefið við almennri spurningu um hvað væri að frétta af rannsóknum á peningamarkaðssjóðum. Það beindist ekki sérstaklega að fjárfestingum þeirra eins og mögulega má skilja af lestri greinarinnar. Fjármálaeftirlitið ítrekar að það gaf blaðamanninum engar aðrar upplýsingar," segir á heimasíðu stofnunarinnar.
Þá bendir Fjármálaeftirlitið einnig á, að í umfjöllun Morgunblaðsins hafi veirð miðað við að peningamarkaðssjóðir hafi haft sömu fjárfestingarheimildir og verðbréfasjóðir. Staðreyndin sé sú að allir peningamarkaðssjóðir voru fjárfestingarsjóðir en um þá gildi talsvert rýmri fjárfestingarheimildir.