Þegar eigendur Actavis kynntust betur starfsemi félagsins eftir að það var afskráð af markaði kom í ljós að rekstraráætlanir stjórnenda stóðust engan veginn. Þá um leið breyttust allar viðskiptalegar forsendur yfirtökunnar, að því er fram kemur á vef sem Björgólfur Thor Björgólfsson hefur opnað um viðskipti sín á Íslandi.
Segir Björgólfur að þetta hafi gerst veturinn 2007 – 2008. Til viðbótar komu upp víðtæk gæðavandamál í einni verksmiðju félagsins í Bandaríkjunum sem hafði í för með gífurlegt tekjutap fyrir félagið og orðsporsvanda á þessu mikilvægasta markaðssvæði félagsins.
Við úrlausn þessara vandamála var m.a. gripið til þess að víkja forstjóra félagsins frá árinu 2002, Róberti Wessmann, úr starfi og var aðstoðarforstjórinn Sigurður Óli Ólafsson ráðinn í hans stað.
Segir Björgólfur Thor að rekstur Actavis hafi gengið vel undanfarið ár
og áætlanir félagsins staðist. Þá eru afkomuspár félagsins mjög
jákvæðar. Eins og fram hefur komið í fréttum eru skuldir félagsins vegna
yfirtökunnar 2007 verulegar og því ekki vandalaust að sigla félaginu á
kyrran sjó, segir enn fremur á vef Björgólfs Thors.