Áætlaður kostnaður við nýja aðgerðaáætlun Grindavíkurnefndar er metinn 470 milljónir króna en þar af greiðir Grindavíkurbær 30 milljónir og ríkið 440. Áætlunin felur meðal annars í sér viðgerðir á innviðum í bænum, jarðkönnun á svæðinu og gerð mannheldra girðinga
![Grindavík Í aðgerðaáætlun Grindavíkurnefndar kemur fram að til stendur að gera við vegi, girða af sprungur og hækka sjóvarnir við höfn bæjarins.](/myndir/gagnasafn/2024/08/09/ec9fc7c3-2068-4588-b5a6-c72b7bcb5a41.jpg)
Grindavík Í aðgerðaáætlun Grindavíkurnefndar kemur fram að til stendur að gera við vegi, girða af sprungur og hækka sjóvarnir við höfn bæjarins.
— Morgunblaðið/Eyþór
Elínborg Una Einarsdóttir
elinborg@mbl.is
Áætlaður kostnaður við nýja aðgerðaáætlun Grindavíkurnefndar er metinn 470 milljónir króna en þar af greiðir Grindavíkurbær 30 milljónir og ríkið 440. Áætlunin felur meðal annars í sér viðgerðir á innviðum í bænum, jarðkönnun á svæðinu og gerð mannheldra girðinga. Nefndarmaður í Grindavíkurnefnd segir undirbúning við aðgerðirnar þegar hafinn þrátt fyrir að líkur séu á gosi við bæinn á hverri stundu.
Langstærsti liðurinn í aðgerðaáætluninni
...