Skúli Ævarr Steinsson fæddist 7. desember 1941. Hann lést 20. ágúst 2024.

Útför fór fram 3. september 2024.

Gamall fyrrverandi sveitungi og vinur hefur nú kvatt jarðvist sína.

Kynni okkar Skúla í Vatnagarði hófust þegar við vorum barnungir. Steinn pabbi Skúla átti tún í nágrenni við Borg og þar var fjölskyldan í Vatnagarði við heyskap á sumrum og lágu þá oft leiðir saman. Okkur var frá fyrstu kynnum vel til vina og kannski var það vegna þess að þegar Skúli og Svana fóru að byggja sér hús hvatti Skúli mig til að taka lóð við hliðina á sér. Við Svana erum fermingarsystkin svo ekki var annað í boði enn gott nágrenni.

Við byggðum svo þarna hlið við hlið og Skúli flutti inn með sína fjölskyldu en þar sem ekkert rak á eftir mér lét ég önnur áhugamál ganga fyrir en

...