Engin hlutdeildarlán hafa verið afgreidd frá því í vor þar sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun bíður enn eftir að fá meira fjármagn frá ríkissjóði fyrir frekari lánveitingar. HMS lokaði fyrir umsóknir um hlutdeildarlán í maí þar sem lánsfjárheimildir voru þá fullnýttar. Vonast var til að hægt yrði að opna fyrir úthlutun í júní þegar Alþingi hefði samþykkt auknar lánsfjárheimildir. Þingið hækkaði heimildina í 23. júní um einn milljarð en fjármunirnir hafa enn ekki borist svo hægt sé að hefja afgreiðslu lána á nýjan leik. „Við erum ennþá að bíða eftir að fá peningana til okkar til þess að geta opnað aftur,“ segir Anna Guðmunda Ingvarsdóttir aðstoðarforstjóri HMS. omfr@mbl.is » 46