Pólland Viktor Gísli Hallgrímsson kom til Wisla frá Nantes í sumar.
Pólland Viktor Gísli Hallgrímsson kom til Wisla frá Nantes í sumar. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður Íslands í handknattleik, fór á kostum í sínum fyrsta leik fyrir pólsku meistarana Wisla Plock þegar liðið tók á móti Chrobry Glogów í efstu deild Póllands í fyrrakvöld. Leiknum lauk með stórsigri Wisla Plock, 35:14, en Viktor Gísli bókstaflega lokaði markinu og var með 53% markvörslu. Þá var hann valinn maður leiksins en liðið er með sex stig eða fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.