Tilbúnir Jóhann Berg Guðmundsson fyrirliði og Åge Hareide þjálfari ræddu við fréttamenn um leik kvöldsins á Laugardalsvellinum í gær.
Tilbúnir Jóhann Berg Guðmundsson fyrirliði og Åge Hareide þjálfari ræddu við fréttamenn um leik kvöldsins á Laugardalsvellinum í gær. — Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson

„Við þurfum að eiga okkar besta leik á móti Svartfjallalandi,“ sagði Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli í gær.

Viðureign Íslands og Svartfjallalands í Þjóðadeild UEFA hefst á Laugardalsvellinum klukkan 18.45 í kvöld.

„Ég tel okkur eiga góða möguleika gegn þeim og við eigum góða möguleika gegn öllum á Laugardalsvelli. Svartfellingar hafa á að skipa góðum leikmönnum sem eru mjög líkamlega sterkir. Þetta verður erfitt en við höfum sýnt það áður að við getum gefið hvaða liði sem er alvöruleik. Þessi leikur snýst fyrst og fremst um það að ná í úrslit og við ætlum okkur þrjú stig á móti þeim.

Stevan Jovetic er frábær leikmaður sem við þurfum að hafa góðar gætur á,“

...