40 ára Ingólfur er Hafnfirðingur, ólst upp í Suðurbænum og býr þar. Hann er deildarstjóri kjaradeildar stéttarfélagsins Sameykis. Áhugamál Ingólfs eru fjölskyldulíf, skotveiði og útivist.


Fjölskylda Eiginkona Ingólfs er Stefanía Eir Ómarsdóttir, f. 1985, sérfræðingur hjá Útlendingastofnun en er í fæðingarorlofi. Börn þeirra eru Ragnhildur Eva, f. 2014, Brimir Logi, f. 2017, og Auður Lea, f. 2024. Foreldrar Ingólfs eru Jón Þorleifsson, f. 1953, matreiðslumeistari, og Sigrún Pálsdóttir, f. 1956, fv. leikskólastarfsmaður, búsett í Hafnarfirði.