— Morgunblaðið/Árni Sæberg

Karlalandslið Íslands í knattspyrnu fór vel af stað í Þjóðadeildinni í gærkvöldi þegar það sigraði Svartfjallaland 2:0 í fyrsta leik keppninnar á Laugardalsvellinum þar sem Orri Steinn Óskarsson og Jón Dagur Þorsteinsson skoruðu sitt markið hvor. Jón Dagur, lengst til hægri, fagnaði markinu vel ásamt Jóhanni Berg Guðmundssyni fyrirliða en Gylfi Þór Sigurðsson lagði markið upp. Íslenska liðið fer til Tyrklands í dag og spilar þar annan leik sinn í keppninni á mánudagskvöldið. » 49