Dómstólar Héraðsdómur Austurlands er annað embættið.
Dómstólar Héraðsdómur Austurlands er annað embættið.

Sjö sóttu um tvö embætti héraðsdómara á landsbyggðinni, en dómsmálaráðuneytið auglýsti þau í einu lagi.

Annars vegar er um að ræða embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Austurlands, sem skipað verður í frá 1. nóvember 2024. Hins vegar embætti dómara sem mun hafa starfsstöð við Héraðsdóm Vestfjarða en sinna störfum við alla héraðsdómstólana eftir ákvörðun dómstólasýslunnar.

Umsækjendur um bæði embættin voru Guðfinnur Stefánsson aðstoðarmaður héraðsdómara, Hákon Þorsteinsson lögfræðingur, Oddur Þorri Viðarsson lögfræðingur, Ólafur Egill Jónsson aðstoðarmaður héraðsdómara, Sólveig Ingadóttir aðstoðarmaður héraðsdómara, Sverrir Sigurjónsson lögmaður og Valborg Steingrímsdóttir lögfræðingur.