— Morgunblaðið/Árni Sæberg

Alls hafa 94 skjálftar mælst í Ljósufjallaeldstöðvarkerfinu á Snæfellsnesi það sem af er ári. Eru þetta fleiri skjálftar en áður hafa mælst á ári frá því mælingar hófust á svæðinu, en mælingar ná aftur til 2009. Virknin tók sig skyndilega upp árið 2021. Ljósufjallakerfið teygir sig frá Kolgrafafirði í vestri að Norðurá í Borgarfirði og dregur nafn sitt af fjallgarðinum á Snæfellsnesi. Virknin það sem af er ári, og síðustu ár, hefur þó að mestu verið bundin við afmarkað svæði í grennd við Grjótárvatn og Hítarvatn. sonja@mbl.is