Það iðar allt af lífi í Reykjanesbæ þessa dagana en Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar setti Ljósanótt, fjölskyldu- og minningarhátíð Reykjanesbæjar, við hátíðlega athöfn á fimmtudaginn
Njarðvík Verðandi heimavöllur Njarðvíkur í Innri-Njarðvík. Þar munu körfuboltaleikir m.a. fara fram.
Njarðvík Verðandi heimavöllur Njarðvíkur í Innri-Njarðvík. Þar munu körfuboltaleikir m.a. fara fram. — Ljósmynd/Adam Calicki

úr Bæjarlífinu

Hermann Nökkvi Gunnarsson

Reykjanesbæ

Það iðar allt af lífi í Reykjanesbæ þessa dagana en Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar setti Ljósanótt, fjölskyldu- og minningarhátíð Reykjanesbæjar, við hátíðlega athöfn á fimmtudaginn. Grunn- og leikskólabörn í sveitarfélaginu voru viðstödd og tónlistarmaðurinn Friðrik Dór söng fyrir börnin.

Ljósanótt er að miklu leyti hápunktur tilverunnar í Reykjanesbæ á ári hverju. Bærinn fyllist af fólki á öllum aldri sem er komið til að skemmta sér með fjölskyldu og vinum.

Stórtónleikarnir á aðalsviðinu í kvöld verða einkum tileinkaðir því að bærinn fagnar 30 ára afmæli í ár. Undir dagskrárliðnum Reykjanesbær 30 ára stíga á svið meðlimir Hjálma og Baggalúts

...