Hjörtur J. Guðmundsson
Hjörtur J. Guðmundsson

Hjörtur J. Guðmundsson birtir á vef sínum, fullveldi.is, grein um „Málið sem þolir ekki ljósið“. Málið er frumvarp sem Þórdís K.R. Gylfadóttir utanríkisráðherra lagði fram fyrir hálfu öðru ári án árangurs en til stendur að reyna við aftur. „Verði frumvarpið, sem kennt er við bókun 35 við EES-samninginn, að lögum mun það leiða til þess að til verði ný forgangsregla í íslenzkum rétti. Ólíkt þeim forgangsreglum sem fyrir eru vegna almennrar lagasetningar, þar sem yngri lög ganga fyrir eldri og sértækari fyrir almennari, mun nýja reglan miðast við það eitt að umrædd löggjöf feli í sér innleiðingu á regluverki frá Evrópusambandinu í gegnum samninginn.

Með öðrum orðum mun frumvarpið þýða í reynd, nái það fram að ganga, að regluverk frá Evrópusambandinu, sem innleitt hefur verið og verður innleitt í framtíðinni á meðan Ísland á aðild að EES, verði gert æðra annarri

...