Sveitarstjórn Skaftárhrepps kallar eftir því að stjórnvöld bregðist við yfirvofandi hættu á þjóðvegi 1 vegna landbreytinga við Leirá sem varð m.a. til þess að jökulhlaup braust fram í ánni Skálm í sumar
Baksvið
Birta Hannesdóttir
birta@mbl.is
Sveitarstjórn Skaftárhrepps kallar eftir því að stjórnvöld bregðist við yfirvofandi hættu á þjóðvegi 1 vegna landbreytinga við Leirá sem varð m.a. til þess að jökulhlaup braust fram í ánni Skálm í sumar. Þetta kemur fram í ályktun í fundargerð hreppsins.
Jökulhlaupið í Leirá kom af fullum þunga í farveg Skálmarinnar og yfir nærliggjandi landsvæði 27. júlí sem olli miklu tjóni á þjóðvegi 1 og á túnum bænda á svæðinu. Á meðan flóðið stóð sem hæst þurfti að loka fyrir umferð og stóðu viðgerðir á veginum yfir
...