Karl Kristján Sigurðsson fæddist í Rómaborg á Ísafirði 14. maí 1918. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði 1. september 2024. Foreldrar hans voru Sigríður Ingibjörg Salómónsdóttir, f. 1886, d. 1976, og Sigurður Jónasson, f. 1867, d. 1965. Systkini hans samfeðra Lárus Mikael, Guðjón Gísli, Halldór, Árni, Helga Pálína og Jónas. Alsystkini Lárus Ingvar, Jón Arinbjörn, Ásgeir, María Elísabet, Salómon Þorlákur og lifir hann bróður sinn.

Hinn 23. desember 1941 giftist Karl Kristjönu Hjartardóttur, f. 1.7. 1918, d. 30.8. 2013. Kristjana átti fyrir Grétar Þórðarson, f. 1939, d. 2023, maki Katrín Bjarney Jónsdóttir, d. 2019. Börn þeirra eru tvö og sex barnabörn. Börn Karls og Kristjönu eru: Ásgeir Kristján, f. 1941, d. 1966, maki Jóhanna Málfríður Jóakimsdóttir, d. 2019, börn þeirra eru tvö, barnabörn fjögur og þrjú barnabarnabörn; Guðrún, f. 1945, d. 2024, maki Úlfar Víglundsson, d. 2011,

...