Ingibjörg Jónína Þórðardóttir (Lilla frá Skálanesi) fæddist 11. ágúst 1932. Hún lést 25. ágúst 2024. Útför fór fram 6. september 2024.

Elsku Lilla mín.

Mig langar að minnast þín með nokkrum línum. Þið þrjár eldri systur mínar voruð allar fæddar á Akureyri, síðan fluttist fjölskyldan til Njarðvíkur og loks til Vestmannaeyja 1937 og leigði þar kjallarann í Vallatúni hjá góðu fólki. Þar höfðu þau búið í ein tvö ár þegar sorgin kvaddi dyra. Faðir okkar lést óvænt í svefni 1. febrúar 1939, aðeins 52 ára að aldri. Lára var 11 ára, Didda níu ára og Lilla sjö ára. Ég var ófædd, fæddist í apríl. Þetta voru erfiðir tímar fyrir ykkur, mamma þekkti fáa í Eyjum og ekki voru tryggingar né áfallahjálp.

Pabbi hafði fest kaup á austurhelmingi Skálaness og fluttum við þangað. Mamma fann ráð til að framfleyta fjölskyldunni og fór

...