Luca de Meo, forstjóri Renault, varar við því að evrópskir bílaframleiðendur gætu fengið á sig allt að 15 milljarða evra sekt ef sala rafbíla tekur ekki að glæðast. Þessi ummæli lét hann falla á laugardag í viðtali hjá útvarpsstöðinni France Inter…
Hægt hefur á sölu rafbíla í Evrópu.
Hægt hefur á sölu rafbíla í Evrópu.

Luca de Meo, forstjóri Renault, varar við því að evrópskir bílaframleiðendur gætu fengið á sig allt að 15 milljarða evra sekt ef sala rafbíla tekur ekki að glæðast.

Þessi ummæli lét hann falla á laugardag í viðtali hjá útvarpsstöðinni France Inter en Evrópureglur leggja þær skyldur á herðar bílaframleiðenda að frá og með næsta ári losi nýir bílar að meðaltali aðeins 96 grömm af koltvísýringi á hvern ekinn kílómetra. Fyrir þetta ár er viðmiðið hins vegar 116 grömm á hvern kílómetra og því um liðlega 17% útblástursminnkun að ræða. Fyrir hvert gramm koltvísýrings umfram leyfilegt meðaltal verða framleiðendur að greiða 95 evra sekt fyrir hvern seldan bíl.

Hægt hefur á sölu rafbíla að undanförnu og gerir það framleiðendum erfitt fyrir að halda útblástursmeðaltalinu nógu lágu til að brjóta ekki útblástursreglur

...