— Morgunblaðið/Árni Sæberg

Alls hafa 96 skjálftar mælst í eldstöðvakerfi Ljósufjalla það sem af er ári. Eru þetta fleiri skjálftar en áður hafa mælst á heilu ári frá því mælingar hófust, en þær ná aftur til ársins 2009. Bera fór skyndilega á skjálftunum árið 2021, eins og Morgunblaðið hefur ítarlega fjallað um. Ljósufjallakerfið teygir sig frá Kolgrafafirði í vestri að Norðurá í Borgarfirði og dregur nafn sitt af fjallgarðinum á Snæfellsnesi. Skjálftarnir hafa þó að mestu verið bundnir við afmarkað svæði við Grjótárvatn og Hítarvatn. sonja@mbl.is