Ingvar Árni Sverrisson fæddist í Borgarnesi 25. september 1952. Hann lést á Landspítalanum 21. ágúst 2024.

Foreldrar hans eru Sverrir Ormsson, f. 1925, rafvirkjameistari, d. 2014, og Dadda Sigríður Árnadóttir húsmóðir, f. 1931. Þau bjuggu í Borgarnesi en lengst af í Huldulandi í Reykjavík. Árni var næstelstur systkina sinna. Hin eru Kristín Þóra, María Edda, Ormur Helgi, Brynja Dadda og Linda Bára.

Fyrri eiginkona Árna er Erla Kristín Bjarnadóttir, f. 1953. Dætur þeirra eru tvær: 1) Dadda Sigríður, f. 1972, gift Jóni Arnari Ingvarssyni og synir þeirra eru Uni Þeyr og Kári. 2) Thelma Björk, f. 1975, var gift Júlíusi Þór Gunnarssyni, d. 2024, og synir þeirra eru Alex Már og Birkir Óli. Núverandi sambýlismaður Thelmu Bjarkar er Gestur Benediktsson.

Árni hóf sambúð árið 1988 með eftirlifandi

...