Ísland mætir Wales í undankeppni Evrópumóts 21 árs landsliða karla í fótbolta á Víkingsvellinum klukkan 16.30 í dag. Þetta er gríðarlega þýðingarmikill leikur en Ísland stendur vel að vígi í hnífjöfnum riðli og er í hörðum slag við Danmörku, Wales og Tékkland um að komast áfram. Ólafur Ingi Skúlason þjálfari segir að íslensku strákarnir séu einbeittir í því að ná í dýrmæt stig á heimavelli. » 26