Katrín prinsessa af Wales
Katrín prinsessa af Wales

Katrín prinsessa af Wales tilkynnti í gær að hún hefði nú lokið lyfjameðferð sinni, en hún greindist með krabbamein fyrr á þessu ári. Sagði Katrín á samfélagsmiðlum sínum að það væri ólýsanleg tilfinning að vera búin með meðferðina.

Katrín, sem er 42 ára, sagði að undanfarnir níu mánuðir hefðu verið einstaklega erfiðir fyrir fjölskyldu sína, Vilhjálm ríkisarfa og börn þeirra þrjú, Georg, Karlottu og Lúðvík.

„Lífið eins og þú þekkir það getur breyst á augabragði, og við höfum þurft að finna leiðir til þess að rata í gegnum storminn og um ókunna vegu,“ sagði Katrín í tilkynningu sinni. Þá bætti hún við að hún ætti enn langt í land með að ná fullri heilsu, en að hún hlakkaði til að snúa aftur til vinnu á næstu mánuðum.