Glódís Perla Viggósdóttir er í hópi 30 bestu knattspyrnukvenna heims, samkvæmt útnefningunni fyrir Gullboltann 2024, Ballon d'Or. Hún er líka önnur tveggja bestu miðvarða heimsfótboltans í kvennaflokki miðað við þann hóp sem tilnefndur er til þessara virtustu verðlauna samtímans

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Glódís Perla Viggósdóttir er í hópi 30 bestu knattspyrnukvenna heims, samkvæmt útnefningunni fyrir Gullboltann 2024, Ballon d'Or.

Hún er líka önnur tveggja bestu miðvarða heimsfótboltans í kvennaflokki miðað við þann hóp sem tilnefndur er til þessara virtustu verðlauna samtímans.

Varla þarf að fara mörgum orðum um hversu stórt þetta er í sögu íslenskrar knattspyrnu.

Enginn Íslendingur hefur áður komist á þennan lista. Það eina sambærilega er þegar Ásgeir Sigurvinsson varð í 13. sæti í kjöri World Soccer á besta knattspyrnumanni heims árið 1984.

Reyndar var einkennilegt að hann skyldi ekki vera tilnefndur í Ballon d'Or það ár en

...