„Það er alveg skýrt að verkefnin eru fjármögnuð með framlögum frá ríki og sveitarfélögum, með Keldnalandinu og flýti- og umferðargjöldum,“ segir Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, í samtali við Morgunblaðið.

Viðbragða hans var leitað við gagnrýni Svönu Helenar Björnsdóttur, bæjarfulltrúa á Seltjarnarnesi, á ýmis atriði samsgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, sem fram kom í grein hennar í Morgunblaðinu í gær. Þar velti hún fyrir sér raunhæfni í fjárstreymisáætlun sáttmálans.

„Það eru hins vegar sveiflur í fjárstreymi á milli ára. Á meðan framkvæmdir eru á fullu er mikið útflæði fjármuna en innstreymið jafnara. Til að jafna sveiflur á milli ára er gert

...