Uppgröftur hófst á ný í Odda á Rangárvöllum undir lok síðasta mánaðar. Hluti af rannsóknarteyminu fór á fimmtudag í könnunarferð inn í göng sem tengdu saman tvo stóra hella í Odda sem talið er að hafi verið notaðir sem fjós
Mælingar Göngin sem tengdu hellana saman eru um fjögurra metra löng og um tveggja metra breið.
Mælingar Göngin sem tengdu hellana saman eru um fjögurra metra löng og um tveggja metra breið. — Ljósmyndir/Oddarannsóknin

Sviðsljós

Ólafur Pálsson

olafur@mbl.is

Uppgröftur hófst á ný í Odda á Rangárvöllum undir lok síðasta mánaðar. Hluti af rannsóknarteyminu fór á fimmtudag í könnunarferð inn í göng sem tengdu saman tvo stóra hella í Odda sem talið er að hafi verið notaðir sem fjós.

Göngin eru um fjögurra metra löng og um tveggja metra breið og hálffull af jarðvegi. Talið er að þau hafi verið grafin fyrir 1100 þegar báðir hellarnir stóðu enn. Talið er líklegast að eldri hellirinn hafi verið í notkun frá 950-1100.

Sveipuð dulúð

Kristborg Þórsdóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands og stjórnandi rannsóknarinnar, segir rannsóknina hafa leitt í ljós spennandi og nýjar niðurstöður. Segir hún

...