Íslandsdeild Amnesty International fagnar 50 ára afmæli sínu um helgina. Af því tilefni fór fram málþing í Norræna húsinu í gær en í dag fer fram mannréttindajóga til stuðnings Manahel al-Otaibi, líkamsræktarkennara og baráttukonu fyrir…
Amnesty Agnès Callamard aðalframkvæmdastjóri er sérstakur gestur Íslandsdeildarinnar.
Amnesty Agnès Callamard aðalframkvæmdastjóri er sérstakur gestur Íslandsdeildarinnar. — Morgunblaðið/Eggert

Iðunn Andrésdóttir

idunn@mbl.is

Íslandsdeild Amnesty International fagnar 50 ára afmæli sínu um helgina. Af því tilefni fór fram málþing í Norræna húsinu í gær en í dag fer fram mannréttindajóga til stuðnings Manahel al-Otaibi, líkamsræktarkennara og baráttukonu fyrir kvenréttindum í Sádi-Arabíu, á Austurvelli eða í Ráðhúsi Reykjavíkur, eftir því hvað veður leyfir. Á sjálfan afmælisdaginn, á morgun 15. september, verður fagnað með skrúðgöngu og veisluhöldum í Iðnó.

...