Alþingi Almenningur getur skoðað húsakynnin í dag á opnu húsi.
Alþingi Almenningur getur skoðað húsakynnin í dag á opnu húsi. — Morgunblaðið/Ómar

Almenningi gefst kostur á að skoða Alþingishúsið og Smiðju, nýja skrifstofubyggingu Alþingis, í dag. Viðburðirnir eru liðir í dagskrá 80 ára afmælis lýðveldisins.

Boðið verður upp á leiðsögn um Alþingishúsið kl. 9-12 og 14-17. Hleypt verður inn í húsið á 20 mínútna fresti, hámark 35 manns í senn, og tekur hver leiðsögn 30 mínútur. Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, og fleiri þingmenn verða á staðnum.

Gengið er inn um aðalinnganginn í Skála, við hlið Alþingishússins. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir fram á vefnum midix.is.

Fornleifar til sýnis

Þá verður opið hús á fyrstu hæð Smiðju frá kl. 14-17 í dag. Til sýnis verða munir sem fundust við fornleifarannsóknir á Alþingisreit áður en húsið var byggt og fjölbreytt fræðslu- og kynningarefni verður sýnt

...