Ynja Blær Johnsdóttir myndlistarkona opnar sína fyrstu einkasýningu í Listvali í dag. Ynja sýnir teikningar unnar með blýanti og eru þær gjarnan teikningar af rýmum og eða innanstokksmunum, unnar í lögum yfir langan tíma þar sem mismunandi…
Ynja Blær Johnsdóttir
Ynja Blær Johnsdóttir

Ynja Blær Johnsdóttir myndlistarkona opnar sína fyrstu einkasýningu í Listvali í dag. Ynja sýnir teikningar unnar með blýanti og eru þær gjarnan teikningar af rýmum og eða innanstokksmunum, unnar í lögum yfir langan tíma þar sem mismunandi birtuskilyrði og andrúmsloft móta sig inn í teikninguna, eins og því er lýst í tilkynningu. Ynja lauk BA-námi í myndlist við Lista­háskóla Íslands vorið 2023, þ.e. í fyrravor.